laugardagur, apríl 09, 2005

Leikurinn ofl.

Jæja þetta var ekki gott hjá okkur á móti Gróttu.Þeir verða nú líklega í toppbaráttu í sumar,þannig að við verðum að taka okkur saman í andlitinu ef við ætlum að gera e-ð.Menn voru mjög slakir í dag,hver og einn einasti,nema kannski 2-3 menn!!!Menn virkuðu áhugalausir og latir,það kann ekki góðri lukku að stýra..Það gerist ekkert að sjálfu sér,þetta verður að ýta við mönnum og menn verða að fara að taka almennilega á því núna.5 vikur í mót..!!Upp með haus og viljann.
Af öðrum málum,ég er að fara erlendis á sunnudag og verð í viku,Karvel og Stefán A verða með þetta hérna fyrir sunnan,og Haukur er að verða klár eftir hremmingar með augað í sér.Svo er næsti leikur við Í.R. á næsta sun. í Egilshöll.Þannig að menn fyrir vestan geta farið að plana hverjir ætla að keyra í þann leik.
Þangað til næst,bless elsku drengirnir mínir...
Jón Steinar.