mánudagur, mars 21, 2005

Vs.BÍ88

Jæja þá er búið að negla leikinn við frændur okkar á Ísó,en hann verður leikinn 2.apríl kl.1400 á Ísafirði.Það verður eflaust hörkuleikur,þeir voru að spila um helgina og komu vel út í þessum leikjum,að mér fannst.Haukar eru mjög sterkir og Grótta líka góðir,en þeir voru víst mjög óheppnir á móti þeim.Æfingar ganga mjög vel núna sem áður,menn eru duglegir að mæta og eru að taka vel á þvi,EN verða að fara að vera duglegri að láta vita með forföll,og með smá fyrirvara líka..en vonandi verður nú æfingaleikur við Ísó um páskana ,ég á frekar von á því.
En svo vil ég bara minna á að þeir sem eru að commenta á þessa síðu skrifi undir sínu nafni..sumir treysta sér ekki til þess,soldið litlir inní sér kannski,en vera þá bara á e-u öðru spjallborði að derra sig..
Munið að borga æfingagjöldin..
Jón Steinar

2 Comments:

At 3:16 PM, Anonymous Hannibal said...

Eru æfingargjöldin ekki 50000kr á sumri, standard æfingagjöld.

kv

 
At 2:16 AM, Anonymous Bjarni Pétur said...

Jú auðvitað! Síðan bætist við 20000 krónur ef þú ákveður að fara frá félaginu. Þetta eru bara standard reglur sem viðgangast í flestum félögum, í það minnsta á Vestfjörðum...

 

Sendu inn athugasemd

<< Home