Deildarbikar
Jæja við höfðum það af að komast í deildó..mjög gott mál.Það er lykilatriði að fá alvöru æfingaleiki á þessum tíma,aðallega til að sjá hvar liðið stendur.Fyrsti leikur á sun kl.1300 á móti Selfoss,sem eru með hörkulið núna,gamla jaxla eins og Ómar Valdimars og Guðjón Þorvarðar sem spiluðu lengi í úrvalsdeildinni.En þetta er áskorun fyrir okkur að spila í þessum riðli,bæði eru lið sem standa framar en við og svo lið sem eru með okkur í riðli í sumar,það er einnig mikill plús.
Mætingin er allt önnur núna,ég var fyrir vestan í liðinni viku og æfði þar undir styrkri stjórn Hauks.Það var mjög gaman og einnig mjög lærdómsríkt að fylgjast með störfum hans,fagmaður fram í fingurgóma!!
Svo förum við að breyta áherslum í æfingunum í næstu viku,förum stytta hlaupin og auka hraðann...
bless í bili
Jón Steinar

3 Comments:
Fagmaður fram í fingurgóma? Hvað er svona fagmannlegt? Ég er orðinn hundleiður á því að hlaupa og hlaupa. Það geta allir mætt og sagt einhverjum að hlaupa þangað til maður dettur niður. Fagmaður hnussssss
Ef þú nennir ekki að hlaupa geturu alveg eins hætt í fótbolta..
Óttar
Hjartanlega sammála. Það er engin fagmaður að störfum í fótbolta í þágu vestfirðinga. Hvorki Haukur Benediktsson, Jón Steinar Guðmundsson né einhver annar.
Sendu inn athugasemd
<< Home