mánudagur, febrúar 28, 2005

Talandi um sorg...

Ég fór vestur um helgina..til hvers veit ég ekki.Mér skilst að þar séu fótboltamenn að æfa undir minni stjórn..!!En það fór reyndar mjög lítið fyrir þessum piltum um helgina,Haukur fór suður og ég fór vestur.Á æfingunni á lau.voru ég,Bjartur,Pétur j og Sundlaugur(Bjarni)....Já það er rétt 4stk!Fín mæting það,á sun vorum við sex,Gunnar M,Þorkell og Ingó létu sig hafa það með okkur á sunnudeginum..Þetta er áhuginn!Við þurfum ekki að kvíða því að fara í úrslit þetta árið með þessa ástundun,því mætingin var ekkert betri fyrir sunnan á laugardag,6 manns,en þó voru 3 búnir að láta vita með forföll en enginn fyrir vestan gerði e-ð slíkt...Þetta er algjör skandall.Við erum að fá sendingu af æfingasettinu í dag(mánud)og eigum 30 sett í pöntun hjá þeim...Mér sýnist að 15 séu meira en nóg..Þetta er nefnilega hugsað fyrir þá sem eru að æfa,ekki hobbíistana sem koma þegar þeir eru ekki að gera e-ð annað!!Hvaða árangri halda menn að þeir nái þegar menn geta ekki mætt á æfingar kl.12 um helgar,leikir eru oft kl.14 á sumrin,ætla menn þá bara að koma þegar þeir vakna??Mætingin heilt yfir er bara léleg!Það er bara þannig,ég er búinn að vera að skoða mætingalistina á báðum stöðum fyrir febrúar og þetta er lélegt...Við erum að æfa 4 sinnum í viku og menn eru ekki að komast í gegnum heila viku án þess að "taka sér frí",og að sjálfsögðu sjá menn ekki sóma sinn í því að láta vita...
En ég læt þetta ekkert á mig fá,ég stend við þá yfirlýsingu mína að ykkar er valið hvort þið viljið fylgja mér...og línur eru að skýrast,við þurfum að leita til annara liða um að fá lánaða menn!!Ég mun á næstu vikum hreinsa hobbíistana út,þannig að eftir verða þeir sem eru klárir að leggja e-ð á sig til að ná árangri..
En þessi póstur á bara við hluta hópsins og menn taki þetta til sín sem eiga það...!!!Þeir vita það sjálfir!
Jón Steinar

2 Comments:

At 1:47 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Þess má geta að Jón Steinar verður staddur í borg flóttans þessa vikuna og því um að gera fyrir alla sem ætla að vera með að drífa sig af stað, leikur um helgina!

Bjarni

 
At 10:58 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Veit einhver á móti hverjum við spilum? Ég veit að við eigum að spila í Reykjaneshöllinni á sun....

Atli

 

Sendu inn athugasemd

<< Home