Dagurinn og vegurinn
Mér þótti nú kominn tími að það væri eitthvað skrifað á þessa síðu. Núna eru um 20 dagar í fyrsta leik og höfum við aldrei verið betri í að hoppa upp tröppur en einmitt núna. Á undirbúningstímabilinu höfum við alveg sýnt á köflum hvað í okkur býr þó svo að úrslitin hafi ekki alltaf verið hagstæð en það var nú gegn liðum í efri deildum. Ágætis mæting á æfingar svosem held ég en nú fer að styttast í sumarið og þá taka kannski einhverjir fram skóna aftur.
